föstudagur, febrúar 10, 2006

Íbúðarkaup, atvinna og jórturleður

Já allt er þegar þrennt er það er trúlega eitt af lögmálum alheimsins. Til dæmis núna þá komu þrjár frábærar fréttir allar sama daginn. (ég ætla að skrifa þær upp, en vinsælasta fréttin er ekki endilega nr 1 og svo framvegis, heldur verður hver og einn að meta það út frá sjálfum sér hver er besta fréttin).
Nr 1. Ég kom í mestu rólegheitum inn á kaffistofu í fyrrakaffi núna fyrir skömmu. Þá skiptir engum togum nema leikskólastjórinn segir að þar sem ég sé svona heimilisleg þarna hjá þeim hvort ég vilji ekki koma að vinna hjá þeim eftir útskrift, ég svaraði um hæl að það væri nú svoldið langt í það en mig vanti nú vinnu í sumar og med de samme var ég ráðin, bara svona kviss bang búið.

Nr 2. Á leiðinni heim þann daginn kom ég við í Krónunni, og viti menn þar við kassan sá ég tyggjó barnæsku minnar!! Nei það var ekki gamalt uppþornað tyggjó frá því ég var lítil heldur var þar ljóslifandi komið GRÆNT WRIGLEY´S DOUBLEMINT CHEWING GUM og einnig í ljósgrænum pakkningum það sem eitt sinn var í hvítum WRIGLEY´S SPEARMINT CHEWING GUM, í plötum og allt. Ég mun sko gera mér ferð í krónuna fyrir þetta tyggjó aftur. Frábærar fréttir ekki satt?

Nr 3. Við fengum samþykkt tilboðið í íbúðna, þannig að ef við fáum greiðslumat þá munum við trúlega flytja 1. apríl.

kv Brynja

2 ummæli:

Brynja sagði...

heyrðu ég gleymdi að segja í hinu að ég skrifaði þetta allt inn á pjásuna.. þetta sem þú varst að spyrja um um íbúðina ... svo þú getur lesið það þar. En takk fyrir hamingju óskirnar með tyggjóið. Ég ætla að njóta þess

Lára sagði...

Vá, til hamingju Brynja!
Ég er á msn núna :)