verða jólin búin. Mér finnst einhvernvegin ekki taka því þetta árið að hlakka mikið til þeirra.. ég meina þetta verða bara einum degi lengri jól en venjuleg helgi. Að vanda verðum við akandi um allar sveitir eins og rófulausir hundar.. Selfoss á þorlák, Reykjavík aðfangadag, Foss jóladag og Þykkvibær á annan... *dæs* ég verð bara þreytt við tilhugsunina. Svo er ég ásamt hinni nýbökuðu móður Ragheiði Guðnýu búnar að festa áramótafílinginn.. jeij ég hlakka eiginlega meira til þess heldur en ferðalaganna ;)
svo sá ég þennan ógurlega skemmtilega *ræskj* leik hjá Freyju svo þegar ég var búin að skrifa í kommentin las ég atriði nr 8. jæja þar sem ég er í jólafríi og barasta að verða búin að öllu.. jú þá ætla ég að dunda mér við að svara ykkur næstu daga ;)
Settu nafnið þitt í comment og ég.......
1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig
5. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
6. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
7. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
8. Ef þú tekur þátt í þessu þá verður þú að setja þetta á bloggið þitt..!!
svona ekki vera feimin... eina skilyrðið er að ég þekki viðkomandi meira heldur en bara í sjón.. hehe
p.s er ekki liturinn úti nokkurnvegin svona???
sunnudagur, desember 18, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

9 ummæli:
þú mátt alveg gera svona um mig :)
:)
okei María lets byrja:
1. Þú gengur frekar í 66 gráðu norður fötum heldur en öðrum útivistarfatnaði ;)
2. öll jólalög í sept. okt. og nóv.
3. eitthvað svona ljúft, humm sambland af vanillu og strawberry
4. hey þetta meikar sens fyrir tvo aðra en ritgerð dauðans + dansinn og söngurinn hehe
5. ælti það sé ekki bara fyrsti tíminn hjá Bryndísi og Kristínu þegar við lansvæðaskiptum okkur ;)
6. einhver köttur, svona stór og liðugur og nautnalegur, ekki ljón kannkski púma eða blettatígur
7. Hvernig ferðu að því að fara svona vel með peningana þína ;)
Liturinn er öllu skárri svona.. en bring it on woman!!
Gera um mig!!!
okei Magga:
1. Þér finnst mjög gaman og nauðsynlegt að gefa gjafir við flest öll tilefni ;)
2. Eitthvað með Britney Spears mynd... kannski ekki mynd en simple lif þættirnir..
3. Daime iskökubragð ef það er þá sérbragð.. en þú verður að sætta þig við það að það minnir mig á þig.
4. Ég fer ekkert að koma með einhverjar leyndó yfilýsingar hér!!
5. Við Rauðavatn á leið yfir á Selfoss, btw þá sá ég einnig hvað þú ert brjálaður bílstjóri.
6. Lax.. leitar aftur á æskuslóðir ;O)
7. Afhverju ferðu ekki í skóla?
Hulda:
1. ohhh það sem mig langar til að skrifa hér fær ekki að fara á opin vef strax.. en þá segi ég bara þú ert mjög klár að ríma hvað rímar t.d við hest jú Brynja er best og svo líka við hvað ertu að fást.. og einskonar ÁST MÚHAHAHAHAH
2. Hemmi Gunn.. Einn dans við mig mig mig mig mig mig..
3. Súkkulaði.. þú ert svoddan nammigrís
4. Látum okkur nú sjá *dæs* kannski eitthvað um dóttur forsetans á bar í köben en það er samt meira bara þú og Magga
5. Hahahaha í STURTU. Ég sver það...
6. Púðluhund með pönkaragreiðslu, þú ert nefnilega barbíprinsessa dulbúin.
7. Hey hvaða tegund er Egla aftur ;)
Er leikurinn búinn, eða...?
Nei nei Lára ég mun svara þér
1. Þig langar til að kaupa þér ný gleraugu
2. Aðventulag baggalúts árið 2005
3. bragðið af kókakólalight
4. æi þetta er erfiðasti liðurinn hjá öllum... ég veit ekki kannski bara takk fyrir allt síðustu tvo mánuði ;)
5. sama svar og hjá Maríu
6. þvottabjörn, þú veist þetta með þvottinn ;)
7. How you doing
Skrifa ummæli