- Fyrrirgefur mér það seint þegar hann kemur úr dekurferðum til ættingja úti á landi. Ég má ekki tala við hann, horfa á hann eða gera neitt sem hann mögulega getur haldið að tengist sér, fyrstu klukkutímana eftir að hann kemur heim. En svo um leið og hann sofnar kúrir hann sig upp að mér og bræðir mann alveg.
- Hann á uppáhalds föt, sem bæði eru buxur sem hann heldur statt og stöðugt fram að séu Bubba byggir buxur, skiljanlegt með aðrar þar sem ég glopraði því einhvertíma út úr mér þegar hann vildi ekki fara í föt. Þær buxur eru dökkbrúnar, flauels, smekkbuxur. En hinar eru gallabuxur með einhverjum kalli á og þær eru víst líka Bubba byggir buxur en hvaðan hann hefur það er óvíst.
- Hann fer með duddu og kodda allt, það er eins og að rífa úr honum hjartað að ætla sér að taka það af honum .
- Ég spurði hann áðan að því hvað hann heiti, jú jú hann var með það alveg á tæru "Lilja" svaraði hann hátt og snjallt....
- Traktorar eru hinn helgi dómur og það að fara að gefa kindum er eitt það frábærasta í heimi. Verst að hann á heima í Grafarvoginum þar sem ekki neitt nema sauðir af öðru tagi.
- Hann er að sjálfsögðu mjög "ákveðinn" og "sjálfstæður" er það ekki af góðu... eða var það illa upp alinn og frekur... er víst ekki dómbær á það.
- Hann fær stjörnur í augun bara af því að heyra minnst á pabba sinn.. eins gott að sumir standi sig, því hátt yrði fallið!
- Hann er bara frábær
miðvikudagur, desember 07, 2005
ég á son
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


4 ummæli:
Já, ég hef nú ekki hitt hann oft en það hefur ekkert farið á milli mála að hann er frábær.
Við vorum búnar að ræða það fyrir mörgum mánuðunum Brynja mín að við ætluðum ekkert að skafa af þessu þannig að frekur er hann og hana nú.. illa upp alinn er hann þó ekki :þ
Æðislegur er hann og kallaður uppáhalds prinsinn á leikskólanum sínum.. ég þarf að segja þér betur frá því..
hehe auðvitað er hann frábær.. en ég ætla að leiðrétta þig hann var kallaður uppáhalds gangsterinn ;) og hrekkjóttur.. en þó bara á starfsfólkið ekki börnin :S hehe
Mér þykir það nú bara góður kostur að vera ákveðinn og sjálfstæður! Annars veit ég alveg hvað þú ert að tala um, á eitt stykki son sem er svona líka ;o)
Skrifa ummæli