mánudagur, nóvember 21, 2005

það eru nú orð að sönnu



að ég nenni ekki að læra, skil á verkefni sjöþúsundogsautján eru núna á föstudaginn og ég nenni því ekki... versta er að það er 100% verkefni. Samt er skilda að mæta í tímana og kennarinn sagði að það gæti haft áhrif á einkunn mætingin í þá.. hvernig getur það passað ef verkefnið er 100%???? Kannski ég fari að lesa verkefnalýsinguna og athugi hvort svarið leynist þar.



Annars þá er litli dýrðardindillinn minn kominn með ansi mikinn orðaforða. Þetta samtal er haft orðrétt eftir en þar sem hann talar örlítið bjagað þá ákvað ég að þýða það fyrir ykkur.

Matti:
Mamma, meiri mandarínu
Mamma:
nei, ekki meira núna. Kannski á eftir.
Matti: Nei!! (stappar niður fótum) Heimska mamma! Heimski pabbi! (og krossleggur hendur á bringu)
Mamma: obbobbobb... (hugsar hvað í ósköpunum hún eigi að gera í þessari stöðu, íhugar að leifa honum aldrei aftur að horfa á Lottu, en þar sem skaðinn er skeður hvort eð er þá er það trúlega of seint úr þessu.) Heyrðu væni (svara hún svo eftir langa mæðu) á mamma að senda þig inní herbergi eins og mamma hennar Lottu gerði við hana?!?!
Matti:
Nei!! (og stappar aftur niður fótum)
Mamma:
Jú þú ferð bara víst inn í herbergi ef þú lætur svona.
Matti:
má ég fá mandarínu??? (hann ákvað að Lottu taktíkin væri ekki að virka, og prófar því alsaklausa engla svipinn sinn og vippar fram vængjum og geislabaug.) Hvað á maður eiginlega að gera við svona orm?
Svo fer leynijólasveinavikan að byrja í bekknum... svona von bráðar! Eða hvað skemmtinefnd??

Sjæsen pæsen tók mér pásu í að skrifa þetta og talaði við Lilju í nákvæmlega 58 mínútur... úffff mér er bara hálf illt í eyranu..

(ég veit að það eru svoldið væmnar myndir hérna en ... ég er bara komin í svoldið jólakap)

6 ummæli:

Brynja sagði...

Heyrðu það átti ekki að koma svona svartur kassi... æi ég nenni ekki að laga það !!! so be it

Nafnlaus sagði...

Jólahvað?? Ég er sko byrjuð að þrífa gluggana og láta upp seríur!!
Hann er soddan engill hann Matti að það er varla að maður trúir þessari frásögn þinni..hehe ;)

Brynja sagði...

Sjáðu til Margrét það er eitt að láta sér detta í hug að skreyta annað að framkvæma það... og þegar kemur að þvi að þvo glugga, það jaðrar við að ég velji ritgerð í staðinn.

Nafnlaus sagði...

Össs ég á svo góðan kall, sorrý unnusta, sem gerir svona hluti fyrir mig.. múahahaha!!!
Farðu og láttu Jón Óla gera eitthvað, svona einu sinni ;)

Brynja sagði...

Hnussss! Hann er veikur :( og til lítils gagns á meðan

Nafnlaus sagði...

Iss það tekur nú ekki langan tíma að þrífa nokkra glugga og henda upp seríum ;o)

En að dýrðardindlinum þínum (mér finnst þetta æðislegt orð!) þá veit ég ekki hvað þú átt að gera. Mín setur einmitt upp englasvipinn og segir "mamma, elska þig" þegar ég er orðin of reið að hennar mati ;o)

-Oddný