þriðjudagur, október 04, 2005

Ég er að kafna úr geðillsku

afþví að...
ég þarf að klára ansi margt í sambandi við skólann í dag...
konan sem ég hringdi í áðan er ekki búin að hringja aftur ...
kellingin sem ég talaði við á heilsugæslunni áðan er eitthvað klikkuð....
ég nenni ekki að lesa 101 grein sem ég þyrfti að vera búin með fyrir föstudaginn...
ég þarf að fara út í skóla í kvöld.. eins og í gærkvöldi og eflaust annaðkvöld líka...
ég skrópaði í skólanum í dag til að læra.. öfugsnúið.. en ég er engu nær þrátt fyrir það...
við getum með engumóti komið Matthíasi í skilning um það að rúmið hans sé mun betra fyrir hann...

En þetta lagast á föstudaginn.. þá verður óhætt fyrir fólk að tala við mig aftur án þess að ég urri eða argi á viðkomandi. Og svo er það bara súpernanný á gaurinn og málið er dautt ;O)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Idol hjá mér á föstudaginn?? :D

Brynja sagði...

Já ég held að það sé frekar Idol hjá Elfu á föstudaginn.. ja eða kannski bara Idol í borgarnesi eða eitthvað ... held að við leggjum eitthvað seint af stað ;)

Nafnlaus sagði...

Já ég var búin að steiiiiingleyma að þú værir að fara til Akureyrar :/