laugardagur, september 03, 2005

Móðir í hjáverkum


Fílaði mig svoldið eins og sögupersónan í bókinni í dag, með nánast endalausan "to-do" lista og mútandi Matthíasi með snakki í Kringlunni svo hann myndi hvorki hlaupa í burtu né öskra eins og ljón. Verð þó að friða manískar sálir að honum er sjaldnast mútað með svona óhollustu, en mér fannst ég bara eiga það skilið í dag ;)
Að launum fyrir Kringluferðina hefur Lilja líka hlotið þann vafasama heiður að vera kallað á í tíma og ótíma og vera úrskurðuð týnd.

Keypti mér líka veski í kringluferðinni, og buddu... eftir afdrifarík örlög uppáhalds veskis míns á menningarnótt.

Matthías er að kvefast því er nú ver og miður, sérstaklega þegar horft er til þess að Jón er farinn frá okkur og kemur ekki aftur fyrr en eftir óákveðinn tíma.

Kennarar eru skrítin fyrirbæri, þeir vita allir (að eigin sögn) hvað við, nemendurnir, höfum mikið að gera. Eftir þá ræður kemur iðulega útlistun á nýju verkefni sem okkur er sett fyrir.

kv aumingja ég

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nohh... bara komin með aðdáendur :D
Múhahahahaha

Bara brjálað að gera hjá þér stelpuskjáta.
Hvað kom fyrir budduna þína á menningarnótt and where is your darling Jón Óli ?

Brynja sagði...

Já ég veit ekki afhverju ég er að fá svona mikið af auglýsinga drasli í kommentin mín.

Og það slitnaði í henni strengur...g.strengur... sko buddunni... hahahaha.. nei það slitnaði bandið á veskinu mínu umþaðbil um leið og við komum niður í bæ..

Johnny boy is in Thykkvitown pikking potatoes from the ground ;)