Í skólanum, sem mér verður og er nú tíðrætt um, er ég í fagi sem heitir barnabókmenntir. Þetta er nokkuð skemmtilegt fag held ég, allavega finnst mér barnabækur skemmtilegar. Jæja ég á að mæta með barnabækur á morgun, einhverjar sem mér finnst skemmtilegar eða standa uppúr að mínu mati. Þar af leiðandi fór ég að fara í gegnum gömlu bækurnar mínar og viti menn, ég komst að því að mikið af þessum bókum var mér gefið til að ámynna mig um það hvað yrði um börn sem hegðuðu sér eins og í bókunum... Sem dæmi má taka um:
Nei- veikina hans Krókópókó. Úff hversu oft heyrði maður það nú ekki, "ertu með nei- veiki" "láttu hana bara vera hún er með nei- veikina"
Tóta tætubuska, því ég var alltaf að tæta í dótinu hennar Þórunnar, jamm ég sé það ljóslifandi fyrir mér þegar mamma talaði um það það að hún væri að eyðileggja dótið alveg eins og ég og mamman væri að gráta alveg eins og Þórunn gerði þegar ég t.d át skóinn af pónýhestinum (fliss).
Lata Stelpan, því ég var svo löt að taka til í herberginu mínu, ég man jólin sem ég fékk hana þá hafði ég ekki einusinni tekið til fyrir jólin... og mamma sagði að þessa bók hefði ég fengið því hún átti svo vel við, og á vissi upp á mig skömmina, þó svo að ég hefði frekar dottið niður dauð heldur en að viðurkenna það ;).
En að skólamálum enn og aftur ég var að telja það saman að þetta er 19 haustið sem ég byrja í skóla ef með eru talin þau tvö ár sem ég var í leikskóla.. jú það er skóli svo það telst með, 2 ár í leikskóla, 10 ár í grunnskóla, 4 ár í menntaskóla, 1/2 ár í HÍ og 1/2 ár í Húsó, svo er þetta annað árið í Kennó. Jamm ég veit varla hvort maður eigi eftir að kunna að haga sér úti í hinum stóra heimi þegar skólanum líkur eftir 2 ár?
Svo stuðaði ég samnemendur mína í dag þegar ég taldi saman verkefnin sem á að skila á önninni, það eru 2 vikur frá og með þessari fram til 2. des sem ekki eru skilaverkefni, jamm ég er ekki að plata og þetta eru eitthvað um 16 verkefni, eða eitthvað þar um bil. Svo nóg er að gera!
jæja nóg um það, ætla að koma mér í bælið og lesa kannski smá í Móðir í hjáverkum.. kv Tóta tætubuska.
fimmtudagur, september 01, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
er einhver sem veit hvernig ég eyði út úr kommentum ?
Hahaha ég man svo vel þegar mamma og pabbi gáfu Erlu systir bókinu um kurteisi!
Aldrei fékk ég neinar svona vafasamar bækur enda fullkomin með meiru ;)
Skrifa ummæli