Það er nú ekki langt síðan ég var með stórar yfirlýsingar um að ég myndi ekki kaupa Hjondæ fyrir mitt litla líf.. en látum okkur nú sjá hvað gerðist.
Við erum búin að kaupa okkur bíldruslu, sem Jón Óli fær til að skottast í vinnuna. Þetta merkir að ég þarf ekki að vakna klukkan 6:30 lengur á morganna. Sem er auðvitað bara alveg frábært.
Verðið sem við fengum bílinn á er svoldið snúið. Borguðum 5oþ en hann var fullur af bensíni svo það er í raun svona hugs hugs... 46þ svo þurfum við að gera við framljósið öðrumegin og stuðaran að framan svo kostnaður við kaup á þessum bíl verður svona tæp 60þ eða eitthvað þar um bil.
En ég held að sú sem seldi okkur bílinn sé eitt af fjórum atriðum.
Stígi ekki í vitið þar sem hún setti á hann 80þ og með einu símtali frá Robba lækkaði hún verðið niður í 50þ án þess að mótmæla. Hún seldi hann með fullan tank af bensíni.. sem er nú ekki ódýrt á þessum síðust og verstu tímum. Hann er 96 árgerð og skoðaður fyrir árið í ár.
Annarsvegar kom mér til hugar að hún væri kannski bara svona ofurgóð, hugulsöm og yndisleg manneskja að selja bíllinn svona ódýrt.
Hún gæti líka verið að ljúga og bíllinn hrynur í götuna á morgun eða hinn. Svo hlær hún tröllahlátri einhverstaðar uppi í fjöllum.
Í fjórða lagi gæti hún verið allt af ofantöldu.
Ég er annars búin að hugsa um þetta klukk dæmi... ég held að ég geti ekki tekið þátt í því. Öll mín tilgangslausu leyndarmál þola ekki dagsljósið, og ef þau þola það vita flestir sem lesa þetta blogg þau hvort eða er.. svo só sorrý þið verið bara að lenda með mér á trúnó einhvertíma til að ná þeim upp úr mér en hingað inn fara þau ekki.
Heybbbb ég er að fara til Kraká í Póllandi... með vinnunni hans Nonnalings, jaaa og auðvitað honum líka. Farið verður fyrstu helgina í nóv eða mánaðarmótin nóv/des.. ég kemst samt bara með ef það verður í nóv... ég get ekki verið í útlöndum daginn fyrir próf... en þetta merkir að ég verð að fara að panta mér tíma hjá lækni til að fá róandi uppáskrifað hjá honum...
sunnudagur, september 25, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

4 ummæli:
Hjondæ fyrir Gappa??.....
Það var HONDA sem þið Brutla voruð að drulla yfir.
Til hamingju með bílinn elskan! Vonandi nýtist hann ykkur vel.
Hættu svo að bulla og taktu þátt í klukkinu, þýðir lítið að rífast í Sæunni og gera þetta svo ekki sjálf!!
ég veit ekki... samþykkið hefur enn ekki komið í póstinum...
Tek undir það með Möggu!!!
Já kannski best líka að óska þér til hamingju með bílinn ;)
Skrifa ummæli