mánudagur, september 26, 2005

Ég vildi óska að það væru páskar!

Mig langar svo í súkkulaði að ég er að verða vitlaus... Jón og Matti borðuðu líka allt ópalið mitt *humprrr* og ég nenni ekki úti í kuldan, samt langar mig óskaplega.
Mér er gersamlega stjórnað af löngunum mínum. Þetta sýnir líka að ég hef enga sjálfstjórn, einu skiptin sem fólk gæti látið blekkjast yfir því að ég hafi sjálfstjórn, þá er það ekki rétt. Það er bara letin í mér sem lýtur stundum út eins og sjálfstjórn. Eins og núna það er ekki sjálfstjórn að þakka að ég sé ekki með súkkulaði í annari og ópal í hinni... nei það er óþrjótandi óeðlileg óheyrileg leti í mér.

En í sambandi við klukkið... okei þá, en munið bara ÞIÐ BÁÐUÐ UM ÞETTA

1. Ég er ótrúlega hrædd við allt mögulegt, reyni stundum að akta kúl, en er skít hrædd við t.d tívolí tæki, flugferðir, geitunga, köngulær, aðra en mig í umferðinni og svo mætti lengi telja.
2. Ég er svo frek að þið roðnið, ég er svo löt að þið bliknið í samanburði og ég er svo tilætlunarsöm að það er viðbjóðslegt.
3. Ég held að ég geti sungið en satt að segja get ég það ekki, ég held líka að ég sé voða sniðug en ég er það ekki, og síðast en ekki síst held ég að ég sé voða gáfuð en trúlega er ég það ekki heldur.
4. Ég lamdi bróðir minn einu sinni í hausinn með hafnaboltakylfu og mútaði honum að segja ekki frá með því að gefa honum allar körfuboltamyndirnar mínar... þó verð ég að segja að mamma frétti ískyggilega fljótt af þessu.
5. Þegar ég var á Laugarvatni ************** ritskoðaðað*** ******************* enda var það brjálað stuð...

þar hafið þið það.. ég ætla að éta ísinn sem jón fór eftir út í búð (sjá færslu 2 *blikkblikk*)

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Interesting Blog. Not exactly what I was looking for, which was stuff on filmmaking...but it was a worthwhile blog. Anyway, thanks for indulging me.

Lára sagði...

Hehehehehe... þú átt bara aðdáendur útum allt :)

Þú ert ágæt, og mér finnst þú alveg voða sniðug... veit ekki með hitt?

Lára sagði...

;)

Nafnlaus sagði...

Ha? Ertu hrædd við flugferðir? Glætan! Ekki séns að ég trúi þessu bulli í þér.
Jú þú ert *ákveðin* sem nýtist oft ansi vel ;)
Jú þú ert löt en nennir samt út í ógeðslegan kuldann til að anda að þér reyk.. *hóst*
Eitt er þó víst að þú ert ferlega gáfuð.. stundum er það bara pirrandi því þá þarf ég að fara að hugsa um hvað þú ert að reyna að segja mér :þ

Brynja sagði...

Hahaha ohhhhh ég er ekkiert *ákveðin* en takk fyrir að segja að ég sé gáfuð elskan ;)