miðvikudagur, september 21, 2005

Burrrrrrrr burrrrrr

Við þurftum næstum því að skafa í morgun, ég veit að þetta hljómar ekki alvarlega þegar maður setur næstum í setninguna en næsti bíll við hliðina á okkar bíl á stæðinu, hann þurfti að skafa þannig að það munaði bara einu stæði. 1 stigs hiti klukkan 7 í morgun, slydda og ísing á vegum í Grafarvogi..... en ég er hætt að tala um veðrið...

Að öðru:
Matti hálf sofandi um miðnætti uppi í mömmu bóli: Mamma klukkan? (sem í íslenskri þýðingu merkir "móðir góð hvað líður tímanum")
Mamman, nánast meira sofandi en barnið: Hún er tíu
Matthías hæstánægður með svarið: Já
Pabbinn sem var að koma sér í bælið, horfði í forundran á mæðginin: Hvernig í ósköpunum vissiru hvað hann væri að spyrja um?


Eitt í viðbót, vissir þú að eina Öskubusku sagan í heiminum þar sem öskubuska ákveður sjálf að sá sem mætir á svæðið með skóinn rétta muni verða maðurinn sinn, er íslensk!

Engin ummæli: