fimmtudagur, júlí 21, 2005

ýsa var það heillin

já ég veit þetta gerist ekki oft en mig langar þessa stundina í soðna ýsu með glæglæglæ nýjum kartöflum (helst þykkbæskum) og íslensku sméri.

En að kröfu Láru og ætla ég að setja sjúkrasöguna mína hingað inn, en kjaftasagan fer ekki hingað inn, hún er bara fyrir æ tú æ ja eða msn til Kósóvó.
Jamm þá hefst sagan:
  • Brynja vaknaði að morgni 20 júlí með hálsríg frá helvíti, alla leið frá vinstra herðablaði og upp eftir öllu, hann boraði sig meira að segja í gegnum höfuðið á bak við eyrað og undir vinstra augað.
  • Brynja ók Nonna sínum í vinnuna og þar sem Matti og Brynja eru ekki vön að fara snemma á fætur á sumrin þá lögðu þau sig aftur eftir staðgóðan morgunverð.
  • Tveim tímum síðar vaknaði Brynja með 40 stiga hita, náði að skrölta framúr og fram í sófa. Matti kveikti sér þá bara á DVD og þau reyndu að þrauka saman. Þegar það var ekki lengur hægt, var hringt neyðarkall í Jón og hann brunaði heim á leið að bjarga unnustunni.
  • Sökum hnakkastífleika, gríðarlegs höfuðverks og hás hitastigs og dauðahræðslu Brynju, ákváðum við að Jón myndi hringja á hjúkku og spyrja hana spjörunum úr. Hún bað sjúklinginn vinsamlegast um að mæta út á heilsugæslu, sem sjúklingurinn og gerði.
  • Læknir leit á Brynju, spurði hana spjörunum úr tók strok úr háls og fékk nei við streptokokkum, sendi hana svo niður á slysó í frekari rannsóknir.
  • Sjúklingur og co mætti á hádegi niður á slysó með beiðni.
  • Ljúf hjúkka frá Selfossi (að ég held því að ég kannaðist fáránlega mikið við hana) Mældi hita, setti upp æðalegg, tók blóð og talaði blíðlega við lasarusinn.
  • Læknir kom og talaði og talaði og talaði, séfræðingur kom og þuklaði og læknir potaði.
  • Vökvi var settur í æð.
  • Sjúklingi gert að hvíla sig aðeins, gefin verkjalyf við beinverkjum og gríðarmikla höfuðverknum.
  • Brynja var rétt að ná að sofna þá voru ljósin glennt upp aftur, og henni var ekið upp á röntgen, þar sem hryssingsleg kella tók á móti henni, og spurði dónalega hvort sjúklingurinn væri ekki fær um að setjast upp.
  • Aftur ekið niður
  • "Reyndu nú að sofna" ljós slökkt
  • ljós kveikt, enginn svefn, nýjum sjúkling rúllað inn, og ég fékk að heyra alla sjúkrasögu hennar, þar sem skilrúm er ekki hljóðdempandi.
  • Læknir kemur og segist vilja hafa mig klukkutíma í viðbót.
  • Jón sem farið hafði fyrr um daginn heim með Matta og sendi hann að lokum í sveitina, svaraði í síman og sagðist verða kominn um 4 þegar lofað var að sjúklingurinn fengi að sleppa út.
  • Læknir kemur og segir Brynju vera með bólgur í blóði... bólgur í ennis og kinnholum.. og ekki með heilahimnubólgu, og ekki heldur með hettusótt, það tvennt síðastnefnda höfðu þeir víst haft svolitlar áhyggjur af sem skýrir innileguna.
  • Brynja útskrifuð um korter í 4 fer og bíður á biðstofunni í 3 korter eftir Jóni (sem var mun lengri tími en hún þurfti að bíða eftir að komast inn til að byrja með)
  • Komin heim með nefúða, sýklalyf og verkjapillur, á að stay low and lay low næstu daga, eins og lækninn orðaði það.
  • Kostnaður rúmar 10þ krónur = heilsugæsla, lega á slysó og lyf.
  • Eins og þið sjáið er dýrt að allir haldi að maður sé með heilahimnubólgu.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æi greyið mitt, láttu þér batna.
Er samt ekki betra að borga 10þ og vera ekki með heilahimnubólgu en 10þ og vera með heilahimnubólgu??

Nafnlaus sagði...

takk takk, jú ætli það sé ekki betra ;) svei mér þá.

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir sjúkrasöguna gæskan... en kjaftasöguna VERÐ ég að fá eftir helgi ;) ég er nefnilega á leiðinni til Makedóníu og verð örugglega ekkert á msninu á meðan... Nema ég hitti þig þar í kvöld?
Well, vertu duglega að taka lyfin þín gamla og láttu þér batna af skútabólgunni.

Nafnlaus sagði...

Það er ekkert smáræði!!
Láttu þér batna elskan og ég verð að fá að heyra þessa kjaftasögu asap ;)

Nafnlaus sagði...

Hehe hún er nú ekkert svoooo merkileg ;)