þriðjudagur, júlí 26, 2005

Hlaupandi bólur og fleiri mál.

Sæl nú!
20.3 gráður og suð- austan átt. Talsverður vindur, svo ekki er sólbaðshæft nema á ónýtu svölunum. Annars ekki sólbaðshæft þar sem Bólu-Matti er enn ekki sofnaður og suðar um hopp á trampolíni á 5 sekúntna fresti.
Jámm Mattinn er með hlaupabólu alveg á áætlun. Hún kom nákvæmlega 17-20 dögum frá smiti, bara skólabókardæmi, um skrilljónir klægjandi bóla sem springa út á litla kroppnum. Hann er annars að ná sér, var áðan úti að þvo reiðtygi með Halldóru, skemmti sér bara vel og blotnaði inn að beini.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æj vonandi lagðist þetta ekki of illa á hann elskuna.. líka betra að hann skyldi fá þetta svona snemma svo hann fái ekki ör :/