mánudagur, júní 27, 2005

afmælið sem ekkert varð úr.

Já ég er komin heim í heiðar dalinn. Við Jóni ókum bara beinustu leið í Grafó í gær, og ég verð nú að viðurkenna það að lúft var að skríða undir MÍNA sæng og upp í MITT rúm. Ég er alveg að fara í bakinu að sofa í 90 cm rúmi með litla plássfreka prinsinum mínum. Brátt fer ég að skríða í barnarúmið þegar hann heimtar að koma upp í.
En já afmælið sem ekkert varð af.. við erum búin að vera að undirbúa tvöfalt fimtugsafmæli í laaaangan tíma, ég er t.d búin að vera meira og minna í 3 vikur í heima hjá mömmu og pabba, og fleyri fjölskyldumeðlimir, ég er búin að þvo þvotta, elda mat í liðið, gefa hænum, slá garða, raka saman hey, reyta arfa, og mála grindverk, og síðasta daginn sat ég meira að segja í góðra vina hópi við að þræða grænmeti og kjöt upp á grillpinna. En þetta allt hjálpaði mér ekkert eftir því sem leið á laugardaginn og afmælisgestir fóru að renna í hlað, því ég var orðin veik... Já veik sagði ég. Ég var komin með beinverki og hita um níu þegar afmælið byrjaði, og þegar ég lá uppi í rúmi og króknaði næstum úr kulda með ,39 gráður og vafin í tvö teppi og sæng, hlustaði ég á fólkið úti í tjaldi klappa og flauta, svo var nikkunni vippað upp og Det var brendivin í flasken sungið misjöfnum rómi. *grát* þetta var ekkert skemmtilegt afmæli ég verð bara að segja eins og er.....
En ég kom í bæinn í gær, aðalega til að passa fyrir ónefnda manneskju sem enn hefur ekki haft samband við mig!!! Ferðinni er þó heitið aftur í sveitina að viku liðinni. Jámm ekki er enn búið að pota niður þessum trjám og ég búin að ráða mig sem ráðskonu í sveit.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Típískt... BARA típískt!!