Okei ég er alveg sammála því að margt má laga í gatnamálum höfuðborgarsvæðisins, en þessi endalausu hringtorg eru að gera mig geðveika. Þvílíkt magn af hringtorgum sem holað er niður á smá svæði eins og Vatnsendan ef maður ekur þar um þá eru "bara" þrjú hringtorg á leiðinni yfir heiðina/hólinn.
Ég skal taka dæmi í gær vorum við Hulda að fara til Möggu, leiðin sem ég ek til Huldu er með 2 hringtorg, svo til að aka út á vesturlandsveg þá fer ég tvö hringtorg til viðbótar, svo er það Vatnsendinn + 3. Við þetta bætist svo Hafnarfjörðurinn þar sem hægt er að velja um að aka annað hvort 1 eða 3 torg til að komast til Möggunnar.... jæja hvað haldið þið að þetta séu mörg hringtorg....... júbb annað hvort 9 eða 11.... for kræing át lát... eins og ég hafi ekkert betra að gera nema aka í hringi !!!!
kreisí pípúl sem gerir þessar götur, svei mér þá ....
Adju Bé-err-ypsilon-enn-joð-aaaa
miðvikudagur, janúar 26, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

3 ummæli:
Ég nenni ekki að skrá mig inn til að fá nafn hér að ofan en til hamingju með nýja bloggið þitt :)
Ég gafst upp líka og er komin með http://plehhh.blog-city.com
Tjá..... Sæunn
Æji afhverju kom ekki kommentið mitt :(
Anyhow... til lukku með nýja bloggið þitt :)
Sæunn
Kommentið þitt kom Sæja!
Hey finnst þér í alvöru ekki skárra að keyra í "nokkra" hringi heldur en að bíða endalaust á ljósum...allvega kýs ég hringavitleysuna frekar.
Eníveis..congratz með nýja bloggið (þó það vanti linka og GESTABÓK..nei bara ef það hefur farið framhjá þér)
Ég er sko líka komin með nýtt blogg..reyndar ennþá á blg.central því ég er ekki nógu klár í hitt.. :/
Allir að skipta..lífinu fylgja breytingar HAHAHA :D
Smá ritgerð í gangi hérna..
Massa flott síða hjá þér Hexia
KissKiss.. Maggie
Skrifa ummæli