Matti: mamma, ég ætla ekki í leikskólann í dag
Ég: Nú, ætlar þú bara að vera einn heima þegar pabbi fer til læknisins og ég verð að læra?
Matti: Já!
Ég: og hvað ætlaru að gera ef þú verður hræddur við úlfinn (nota bene þá notar hann það alltaf ef þarf að ná í eitthvað fram þegar hann nennir ekki að ná í það sjálfur, að hann sé svo hræddur við úlfinn sem er á nákvæmlega sama stað og hluturinn sem þarf að ná í.)
Matti: þá kemur vondi kallinn bara og skítur úlfinn.
Ég: okei, en hvað ætlar þú svo að gera þegar þú ert einn með vondakallinum?
Matti: þá bara hleyp ég og pong á hann og vondikallinn dettur og ég loka hurðinni. Því´að ég er svo sterkur.
Ég: ertu svo sterkur að þú ræður við vondakallin?
Matti: Nei, uuu já og þá kemur bara ljónið og ljónið bítur vondakallinn í rassinn og ég fer á bak á ljóninu (ég veit hann er bara tveggja að verða þriggja en ég býst við að þetta sé orðalag úr einhverri bók því þetta er nákvæmlega það sem hann sagði) og fer út með því.
Við hættum að rökræða um þetta þarna, og að lokum kom ég barninu á leikskolann, en það er ekki annað hægt að segja en hann hafi svar á reiðum höndum.

2 ummæli:
Algjör snillingur... varð bara að segja það... aftur ;)
HAHAHA! Snillingurinn!
Skrifa ummæli