Af okkur er allt gott að frétta...
Enn er mikið í kössum svo ekki verður strax partý, en við erum aldeilis búin að vera á spending spree ... keyptum borðstofuborð, og stóla við, sjónvarpsskáp og erum að reyna að festa kaup á tölvuskáp as ví spík. Svo þurftum við að kaupa okkur nýtt hjónarúm þar sem kingsize rúmið okkar var ekki alveg að gera sig í herberginu (það er sko 2m x 210m og skápurinn er svo stór í því að ekkert annað hefði komist fyrir í herberginu, þar sem við vorum búin að fá nóg af svoleiðis í síðustu íbúð, settum við rúmið okkar bara í geymslu og keyptum okkur nýtt í ikea!! Mun henntugra.
Annars erum við meira og minna barnlaus hérna þessar vikurnar, Matthías býr svo vel að eiga góða afa og ömmur sem ólm vilja bjóða honum í sveitina hann var í síðustuviku í 3 daga í þybbanum og svo fór hann núna á laugardaginn síðasta til mömmu og pabba og kemur ekki aftur fyrr en á fimtudaginn.. barnið er sko bara að verða að unglingi eða því sem næst ;)
Annars er fátt af okkur að frétta, við hjónaleysurnar erum að fara að fagna því í góðra vina hópi að það séu 5 ár síðan við útkskrifuðumst. Förum að Laugarvatni á útskriftina á laugardaginn og um kvöldð verður matur A la Svenni kokkur og svo tjútt á vistinni og ball í N-stofunni.. bara allt eins og í gamladaga ja nema nú verður maður bara með leyfi frá húsverði ;) .
þriðjudagur, maí 23, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

4 ummæli:
Ætla að kíkja í heimsókn til ykkar í næstu viku.. Bí reddí.. ok ?? ;)
ó mæ god sko ;)
Á mínu heimili gætir töluverðs spennings þeirra gamalkunnu hjóna Danna og "Rósu" sem ætla að skella sér á júbileringu þrátt fyrir veikindi "Rósu" sem lýsa sér í þrálátum beyglum á víð og dreif og krossviðsplötu í afturrúðu.
Þau búast samt sem áður við því að mæta tvíelfd næstkomandi laugardag og trilla liðin með gleði og strumpasöng eins og þeim er einum lagið.
-Ragnhildur hans Danna
Já "Rósa" klikkar ekki frekar en fyrri daginn. Spurning hvort það verði fleira sem minni á gamla tíma svo sem að Danni eyði nóttinni uppí hjá mér og Jóni?!?! Ekki fá böllin á Laugarvatni sem enduðu þannig... sælla minninga þegar Jón ældi hákarli út um gluggan ...
Skrifa ummæli