laugardagur, mars 18, 2006

Alveg magnað

Þessi texti er í barnabók sem ég keypti um um daginn. Ég var búin að lesa bókina fyrir Matta þegar ég kom auga á svona eftirmála aftast í bókinni sem var svohljóðandi:


"Hver er höfundur Alí Baba og ræningjanna 40?

Þeirri spurningu er nú erfitt að svara því. Eiginlega er enginn höfundur, eða hann er algerlega óþekktur. Sagan er nefnilega í Arabíska þjósagnasafninu, sem heitir Þúsund og ein nótt. Í upprunalegu sögunni er Alí Baba bláfátækur maður, sem kemst af tilviljun að því, hvar ræningjahópur geymir ránsfengi sinn. Hann lærir lykilorðin "Sesam opnist þú." Þannig kemst hann inn í hellinn og stelur frá ræningjunum hinu og þessu, þangað til þeir komast að því. Þá láta ræningjarnir flytja sig í olíubrúsum til borgarinnar og ætla að ráðast á Alí Baba, en trúr þjónn hans kemst að því og hellir sjóðandi olíu ofaní brúsana, svo allir ræningjarnir týna lífi. Svona geta þeir verið grimmir og eru enn í dag, þessir Arabar, en þeir trúa á annan Guð, sem þeir kalla Alla og er Múhameð spámaður hans."


bókin heitir Trillurnar þrjár með Alí Baba og 40 ræningjum...

2 ummæli:

Lára sagði...

Já Brynja.. las þetta og var búin að kommenta á þetta, en ekkert kom greinilega:
Ertu ekki búin að rífa þetta úr bókinni?

Brynja sagði...

ég klippti þetta úr henni. Mér finnst þetta bara svo magnað að svona sé í barnabók sem gefin er út árið 1989