föstudagur, nóvember 04, 2005

það á nú ekki af mér að ganga svei mér þá

Ég er komin heim heil á húfi.
Bíddu var eitthvað að þér gæti fólk spurt og ég get svarað því að það var svo sannarlega eitthvað að mér.
Ég var að fara að sofa um hálf þrjú í nótt og þegar ég var milli svefns og vöku ætlaði hjartað að hoppa út um brjóstkassann á mér. Ég kólnaði öll upp og dofnaði í höndunum, jæja svo leið tíminn löturhægt og ég var búin að róa mig niður, haldið þið ekki að þetta hafi bara gerst aftur sisvona, mér leist nú ekki á blikun þar sem ég dofnaði aftur upp, varð köld á vörunum og fannst eins og hjartað hægði á sér eftir þessa kippi.
Ég vakti jón með látum og staulaðist fram í stofu þar sem ég lagðist á gólfið, skalf og nötraði, og á mér spratt út flóð af köldum svita. Jón Ólafur sem kallar mig stundum svoldið móðursjúka var nú ekkert að æsa sig yfir þessu, ekki einusinni þegar ég sagði honum hvað gengi á og "bað" hann að hringja á hundrað og tólf og fá sjúkrabíl í kvelli. Sem hann og gerði, einnig bað ég hann um að hringja í Gussann til að koma og vera hjá Matta.
Sjúkrabílakallarnir komu og mældu hjarta...slögin mín.. eða eitthvað svoleiðis og sáu að það var eitthvað í gangi þarna einhver aukaslög inni á milli. (En svo heyrði ég annan segja "hún er með fín lífsmörk" Gott hugsaði ég, ég lifi þá ferðina á spítalann.. hehe.) Jæja brunað var með mig niður á bráðamótöku og jón kom á okkar bíl á eftir.
Vissuð þið að súrefni er ótrúlega kalt beint í nefið.
Á spítlanum var ég skoðuð utan sem innan (reyndar bara blóð að innan) og allt í keyinu nema fyrir þessi aukaslög. Svo var mér gert að leggja mig bara!!! Bara tjilla.
Svo þegar það var alveg að takast eftir að ég var búin að telja kassana í loftinu nokkrum sinnum rauk hjartslátturinn alltíeinu frá 100 upp í 180!!! sko til að setja það í samhengi þá er lofthræddur maður sem er að fara í teygjustökk með svona 200 slög.
Jebbserrínó ég var bara eins og aðalgestaleikari í ER eða House frekar þar sem fólk vissi ekkert hvað var að mér. En svo skrapp Jón í burtu og ég var tekin til yfirheyrslu... hann spurði mig út í líf mitt og annað en að lokum spurði hann "er eitthvað fleyra sem þú vilt segja mér? Nota kannski tækifærið núna?" (læknir gítur augum á stólinn sem jón sat á) .....
Jæja en í dag dag.. þ.e eftir að sólin kom upp þá náði ég loks að sofna... í smá stund eftir að vera ´buin að fá róandi, róandi og hjartaslagastillandi 3. og ég svaf í svona ummmm 2 tíma! Greit ekki satt.
áður en ég fór fékk ég svo að fara í hjartasónar og skoða í mér hjartað.. magnað fyrirbæri alveg hreint!
Læknisgreining STRESSSSSSS og Langtíma streita!

Jæja ég á að hitta hjartalækni í enda mánaðarins og ganga með hjartasírita í sólahring... ælti það verði daginn fyrir skil á verkefni svo þeir fái raunsanna mynd af streði leikskólakennaranema ;)

Jæja ég ætla að leggjast með tærnar upp í loft að læknisráði og ég þarf vart að nefna það að ekkert verður úr afmælisveislum um helgina.

Kv Brynja stresss

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Úff... þú verður að fara rosalega vel með þig skvísa! :o)
Kv. Oddný

Nafnlaus sagði...

Úff snúllus eftir að lesa þetta þá fær maður bara sting í hjartað.. en alveg magnað að lesa þessa sögu samt, flissaði endalaust ;)
Láttu þér líða vel skvís!